Laus störf
Straumur mun taka formlega til starfa sem fjárfestingabanki á næstu dögum. Markmið Straums er að vera leiðandi fjárfestingabanki á Íslandi. Bankinn mun leggja áherslu á fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskipti. Straumur er að öllu leyti í eigu ALMC hf. sem er nær alfarið í eigu erlendra fjárfesta. Eiginfjárstaða Straums er sterk og skuldir engar. Starfsmenn Straums eru um 25 talsins og hafa þeir allir víðtæka reynslu af fjárfestingabankastarfsemi. Straumur leitar nú að forstöðumönnum og sérfræðingum í markaðsviðskiptum og fyrirtækjaráðgjöf til að styrkja þann hóp. Viðkomandi aðilar þurfa að hafa reynslu af störfum á fjármálamarkaði, vera metnaðarfullir og reiðubúnir að starfa í krefjandi umhverfi.
Starfsmenn í fyrirtækjaráðgjöf
Starfssvið:
- Ráðgjöf í tengslum við endurskipulagningu fyrirtækja
- Ráðgjöf við sameiningar, kaup og sölu fyrirtækja
- Samskipti við viðskiptavini og þróun viðskiptatengsla
- Þátttaka í stefnumótun og uppbyggingu sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi á fjármálamarkaði
- Þekking á fjármálum og rekstrarumhverfi fyrirtækja
- Hæfileikar til þess að þróa og útfæra lausnir í flóknum og erfiðum fjármálaverkefnum
- Hæfni til að koma frá sér efni í ræðu og riti á íslensku og ensku
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Starfsmenn í markaðsviðskipti
Starfssvið:
- Miðlun verðbréfa, gjaldeyris og afleiðna
- Samskipti við viðskiptavini og þróun viðskiptatengsla
- Þátttaka í stefnumótun og uppbyggingu sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi á fjármálamarkaði
- Þekking á skuldabréfamarkaði og verðlagningu skuldabréfa
- Greiningarhæfni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Faglegur metnaður og öguð vinnubrögð
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Próf í verðbréfaviðskiptum
Umsjón með ráðningu
Hilmar Garðar Hjaltason - hilmar.hjaltason@capacent.is
Jóna Björk Sigurjónsdóttir - jona.sigurjonsdottir@capacent.is
Umsóknafrestur til og með:
5. september 2011
