Stjórn

Andrew Bernhardt

Andrew Bernhardt er framkvæmdastjóri ALMC hf., eiganda Straums fjárfestingabanka hf. Andrew hefur starfað hjá ALMC síðan í október 2007. Hann hefur tekið þátt í endurskipulagningum á fjölmörgum eignum ALMC. Áður en Andrew hóf störf hjá ALMC var hann forstöðumaður hjá GE Commercial Finance. Þar á undan var Andrew í 27 ár hjá Barclays Bank þar sem hann var á árunum 2001-2005 forstöðumaður skuldsettrar fjármögnunar í London.

Christopher Perrin (formaður stjórnar)

Christopher Perrin situr í stjórn Straums. Hann er 54 ára og er með meistaragráðu í sagnfræði frá háskólanum í Vermont í Bandaríkjunum. Hann starfaði hjá Merrill Lynch í Bandaríkjunum og Austurríki, bæði sem fjármálaráðgjafi og við fjárfestingar. Síðar gegndi hann starfi framkvæmdastjóra hjá Girocredit í Austurríki. Árið 1994 hóf hann störf hjá CA IB Corporate Finance Beratungs GmbH sem aðstoðarforstjóri og yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar. Auk þess tók hann sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Síðustu ár hefur Christopher Perrin starfað sem sjálfstæður ráðgjafi, meðal annars við verkefni á sviði endurnýtanlegrar orku. Einnig hefur hann aðstoðað nýja eigendur ALMC við endurskipulagningu félagsins.

Finnur Reyr Stefánsson

Finnur Reyr Stefánsson er hagfræðingur frá Háskóla Íslands 1992 og með MBA í fjármálum 1994 frá Virginia Tech í Bandaríkjunum. Hann starfaði sem sjóðsstjóri hjá Landsbréfum frá 1994 þar til hann hóf störf í áhættustýringu hjá Fjárfestingarbanka atvinnulífsins (FBA) árið 1997. Finnur tók við starfi framkvæmdastjóra Markaðsviðskipta Íslandsbanka-FBA árið 2000 og sat í framkvæmdastjórn bankans frá þeim tíma. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Glitnis árið 2006 en lauk störfum fyrir bankann vorið 2007. Frá þeim tíma hefur hann verið stjórnarmaður og hluthafi í fjárfestingarfélaginu Siglu ehf. og fasteignafélaginu Klasa ehf.

Sigurgeir Guðlaugsson

Sigurgeir Guðlaugsson situr í stjórn Straums.  Hann útskrifaðist árið 1999 með BSc. gráðu í alþjóða viðskiptum frá Copenhagen Business School. Strax að námi loknu hóf hann störf á fyrirtækjasviði Fjárfestingarbanka atvinnulífsins (FBA) og starfaði síðar hjá sameinuðum ÍslandsbankaFBA. Sigurgeir Guðlaugsson hóf störf hjá Actavis Group árið 2003 og stýrði samrunum og yfirtökum hjá félaginu. Árið 2006 tók hann við starfi framkvæmdastjóra Novator Healthcare og síðar framkvæmdastjóra Actavis Pharma Holding 1, móðurfélags Actavis Group. Árið 2009 stofnaði hann ráðgjafafyrirtækið Citalfort Consulting sem veitir víðtæka fjármálaráðgjöf til fyrirtækja, fjárfesta og opinberra aðila.

Örvar Kærnested

Örvar Kærnested situr í stjórn Straums. Hann lauk BSc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og er löggiltur verðbréfamiðlari. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings banka til ársins 2006 þegar hann tók við starfi aðstoðarframkvæmdastjóra hjá Kaupthing Singer & Friedlander í Bretlandi. Árið 2007 tók hann við sem framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs FL Group, síðar Stoða og stýrði skrifstofu þeirra í London. Frá árinu 2009 hefur hann  rekið Ortus Capital sem starfar á sviði ráðgjafar og fjárfestinga.

Varamenn stjórnar

  • Bernhard A. Petersen
  • Brynjar Þór Hreinsson
  • Gísli Valur Guðjónsson
  • Helgi Eysteinsson
  • Klaus Requat




Leita á vefnum


Image courtesy of Paul Corica www.psimage.co.uk
Þetta vefsvæði byggir á Eplica