Saga
Saga Straums hófst árið 1986 með stofnun Hlutabréfasjóðsins. Félagið þróaðist hratt á næstu árum og fékk fjárfestingabankaleyfi árið 2004. Með sameiningu við Burðarás varð bankinn stærstur fjárfestingabanka á Íslandi. Bankinn stóð af sér hið mikla hrun haustsins 2008 en var að lokum tekinn yfir af FME í mars 2009. Starfsfólk, skilanefnd og kröfuhafar unnu í kjölfarið ötullega að endurskipulagningu bankans og varð hann fyrstur íslenskra banka til að klára endurskipulagningu og nauðasamninga í júlí 2010.
Með samþykkt nauðasamninganna var staðfestur sá vilji almennra kröfuhafa að endurvekja fjárfestingabankastarfsemi á Íslandi. Almennir kröfuhafar Straums-Burðaráss voru að stærstum hluta erlendir bankar og fjárfestingarsjóðir. Straumur-Burðarás fjárfestingabanki fékk að loknum nauðasamningum nafnið ALMC hf. ALMC er eini eigandi Straums. Á grundvelli þjónustusamnings milli félaganna veitir Straumur móðurfélagi sínu, ALMC, þjónustu á sviði bakvinnslu, uppgjörs, upplýsingatækni o.fl.
