Gildi
Starfsfólk Straums leggur allan sinn metnað í að ávinna sér traust og tiltrú viðskiptavina og vinnur af heilindum í þeirra þágu.
Gildi Straums
Árangur – Við leggjum okkur fram í þágu viðskiptavina okkar og við ætlumst til þess að samstarfsfélagar geri slíkt hið sama. Við leggjum áherslu á frumkvæði, þekkingu, reynslu, látum verkin tala og vinnum sífellt að virðisaukningu. Við reynum stöðugt að bæta okkar eigin frammistöðu.
Heiðarleiki – Samfélagið, hagsmunaaðilar, fjölskylda og vinir ætlast til þess að við séum heiðarleg og við gerum einnig þá kröfu til okkar sjálfra. Við stöndum við það sem við segjum og sýnum fólki virðingu. Við keppumst við að ávinna traust viðskiptavina okkar, forðast hagsmunaárekstra og starfa í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti.
Samskipti – Við teljum að samskipti séu lykillinn að varanlegum árangri. Við hlustum á viðskiptavini okkar og tökum mið af því sem þeir segja. Við temjum okkur hreinskiptni, við segjum það sem við meinum, erum hreinskilin en tileinkum okkur auðmýkt og sýnum virðingu.
