Skilaboð frá forstjóra
Markmið Straums er að vera leiðandi fjárfestingabanki á Íslandi. Bankinn er sjálfstæður og óháður en það tel ég vera helstu styrkleika bankans ásamt mannauðnum. Starfsmenn Straums eru um 25 talsins og þeir hafa allir víðtæka reynslu af fjárfestingabankastarfsemi. Bankinn mun einbeita sér að faglegri þjónustu við að meta, miðla og verðleggja áhættu. Þannig munum við leiða saman fjárfesta, fyrirtæki og markaðsaðila og bjóða þeim framúrskarandi þjónustu.
Ég sé mikil tækifæri á Íslandi, meðal annars á sviði sjávarútvegs, orkuiðnaðar og ferðaiðnaðar. Það er mikil uppbygging framundan og Straumur vill leggja sitt af mörkum við endurreisn og styrkingu íslensks atvinnulífs. Nú er líka meiri þörf en nokkru sinni áður á erlendu fjármagni inn í landið. Þar sé ég mikilvægt hlutverk fyrir Straum. Þá er líka mikil ábyrgð að reka bankastofnun í dag og við þurfum að vanda til verka og starfa af heilindum. Á það munum við leggja áherslu.
Pétur EinarssonForstjóri Straums
