Um Straum
Straumur er sjálfstæður og óháður fjárfestingabanki . Eignarhald bankans er traust, alþjóðlegt og án aðkomu ríkisins. Starfsmenn bankans hafa mikla reynslu af almennri fjárfestingabankastarfsemi og leggja metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum vandaða þjónustu.
Straumur veitir bæði innlendum og erlendum viðskiptavinum almenna fjárfestingabankaþjónustu, þar með talið markaðsviðskipti og fyrirtækjaráðgjöf. Hjá bankanum starfa um 25 manns. Höfuðstöðvar Straums eru í Borgartúni 25, 105 Reykjavík. Afgreiðslan er opin virka daga frá 9:00-17:00
