Peningaþvætti

Straumur fjárfestingabanki hf. hefur sett sér reglur sem hafa það að markmiði að leitast við að hindra að rekstur og starfsemi bankans verði notuð til að þvætta fjármuni eða til að fjármagna hryðjuverkastarfsemi. Með setningu reglnanna vill bankinn leitast við að uppfylla í hvívetna ýtrustu kröfur sem gerðar eru til fjármálafyrirtækja á innlendum og alþjóðlegum vettvangi um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Hluti af skyldu Straums er að þekkja deili á viðskiptavinum sínum og starfsemi þeirra og því ber bankanum að gera áreiðanleikakönnun á viðskiptavinum sínum, sem gert er m.a. með því að afla upplýsinga frá þeim.

  Peningaþvættisreglur Straums




Leita á vefnum


Image courtesy of Paul Corica www.psimage.co.uk
Þetta vefsvæði byggir á Eplica