MiFID
Þann 1. nóvember 2007 tóku í gildi ný lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 sem innleiddu tilskipun Evrópusambandsins um markaði fyrir fjármálagerninga (e. Markets in Financial Instruments Directive eða svokölluð MiFID-tilskipun). Tilskipunin nær til allra ríkja á EES svæðinu og þar með talið Íslands.
Markmið MiFID tilskipunarinnar er að samræma reglur um neytendavernd fjárfesta og skapa sameiginlegan innri markað með fjármálaþjónustu. Áhersla er á aukið eftirlit, faglega framkvæmd og upplýsingagjöf. Einnig er löggjöfinni ætlað að tryggja að viðskiptavinir fjármálafyrirtækja, sem eiga í verðbréfaviðskiptum, fái ávallt viðeigandi upplýsingar og ráðgjöf. Til að tryggja það eru lagðar auknar skyldur á viðskiptavini um upplýsingagjöf til fjármálafyrirtækja.
Ein af meginbreytingunum sem MiFID tilskipunin hefur í för með sér er að viðskiptavinir eru flokkaðir í mismunandi hópa eftir stöðluðum viðmiðunum. Tekið er mið af reynslu og þekkingu aðila sem stunda viðskipti á fjármálamörkuðum. Fjárfestavernd er mismikil og fer minnkandi eftir því sem reynsla og þekking á verðbréfaviðskiptum er talin meiri. Viðskiptavinum er skipt upp í þrjá meginflokka; almenna fjárfesta, fagfjárfesta og viðurkennda gagnaðila.
Almennir fjárfestar:
Almennir fjárfestar njóta mestrar fjárfestaverndar lögum samkvæmt. Í því felst m.a. að Straumi ber að veita þeim greinargóðar upplýsingar um bankann, þjónustu hans, um fjárfestingakosti og áhættu og kostnað þeim tengdum. Við fjárfestingarráðgjöf er bankanum skylt að meta hvort tiltekin þjónusta og/eða fjármálagerningur hæfi fjárfestingarmarkmiðum almenns fjárfestis, fjárhagslegri stöðu hans, reynslu og þekkingu. Hvað varðar önnur verðbréfaviðskipti ber að meta í ákveðnum tilvikum hvort tiltekin þjónusta eða fjármálagerningur sé viðeigandi fyrir almennan fjárfesti í ljósi þekkingar hans og reynslu. Í hóp almennra fjárfesta falla allir einstaklingar sem og smærri fyrirtæki og félög.
Almennir fjárfestar geta, með skriflegri umsókn, óskað eftir því að bankinn fari með þá sem fagfjárfesta. Almennum fjárfesti er heimilt að óska eftir slíkri breytingu almennt eða vegna einstakra viðskipta eða tegundar viðskipta. Þegar almennur fjárfestir óskar eftir flokkun sem fagfjárfestir skal Straumur leggja mat á sérfræðikunnáttu, reynslu og þekkingu hans og hvort hún veiti nægilega vissu fyrir því að hann geti sjálfur tekið ákvörðun um fjárfestingar og skilji áhættuna sem í þeim felst. Þessu til viðbótar þarf almennur fjárfestir að uppfylla tiltekin fjárhagsleg skilyrði. Bent skal á að fagfjárfestar njóta mun minni verndar en almennir fjárfestar og með beiðni um breytingu á flokkun er almennur fjárfestir að afsala sér þeirri vernd sem hann nýtur sem slíkur.
Fagfjárfestar:
Með fagfjárfestum er átt við aðila sem búa yfir reynslu, þekkingu og sérfræðikunnáttu til að taka sjálfir ákvarðanir um fjárfestingar og meta áhættuna sem þeim fylgir. Skyldur Straums gagnvart þeim eru minni en gagnvart almennum fjárfestum. Við fjárfestingarráðgjöf er bankanum skylt að meta hvort tiltekin þjónusta eða fjármálagerningar séu í samræmi við fjárfestingarmarkmið fagfjárfestis. Hvað önnur verðbréfaviðskipti varðar er bankanum ekki skylt að meta hvort tiltekin þjónusta eða fjármálagerningur séu viðeigandi í ljósi þekkingar og reynslu viðkomandi fagfjárfestis.
Fagfjárfestar eru:
- Lögaðilar sem hafa starfsleyfi eða sinna lögbundinni starfsemi á fjármálamörkuðum svo sem fjármálafyrirtæki, vátryggingafélög, sjóðir um sameiginlega fjárfestingu og lífeyrissjóðir.
- Stór fyrirtæki sem uppfylla tiltekin skilyrði um efnahagsreikning, ársveltu og eigið fé.
- Ríkissjóðir, sveitastjórnir, seðlabankar og alþjóðastofnanir.
- Aðrir stofnanafjárfestar sem hafa það að aðalstarfi að fjárfesta í fjármálagerningum.
Fagfjárfestum er heimilt, með skriflegri umsókn, að óska eftir að teljast til almennra fjárfesta. Hægt er að óska eftir slíkri breytingu almennt eða vegna einstakra viðskipta eða tegundar viðskipta. Fagfjárfestar geta einnig óskað eftir því að teljast til viðurkenndra gagnaðila að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Bent skal á að viðurkenndir gagnaðilar njóta minnstu fjárfestaverndar lögum samkvæmt. Fagfjárfestar bera ábyrgð á að tilkynna bankanum um breytingar sem áhrif geta haft á flokkun þeirra sem og ef þeir telja flokkun sína ranga.
Viðurkenndir gagnaðilar:
Viðurkenndir gagnaðilar eru þeir aðilar sem njóta minnstu fjárfestaverndar lögum samkvæmt. Gengið er út frá því að þeir hafi viðamikla reynslu, þekkingu og sérfræðikunnáttu á sviði viðskipta með fjármálagerninga. Bankanum er því ekki skylt að meta hvort tiltekin þjónusta eða fjármálagerningar séu við hæfi viðurkennds gagnaðila. Viðurkenndir gagnaðilar eru aðilar sem falla undir 1., 2. eða 3, tölulið skilgreiningar á fagfjárfestum. Viðurkenndir gagnaðilar bera ábyrgð á að tilkynna bankanum um breytingar sem áhrif geta haft á flokkun þeirra sem og ef þeir telja flokkun sína ranga. Viðurkenndum gagnaðilum er heimilt, með skriflegri umsókn, að óska eftir því að falla í annan flokk og njóta aukinnar verndar í samræmi við þá flokkun.
Hér má finna upplýsingabækling FME um MiFID.
