Meðferð kvartana
Straumur fjárfestingabanki hf. leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi og vandaða þjónustu og hefur það að leiðarljósi að starfa ávallt í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti. Hluti af þeirri þjónustu er að veita viðskiptavinum upplýsingar um hvert skuli snúa sér komi upp ágreiningur á milli viðskiptavinar og bankans. Straumur hefur sett sér verklagsreglur um meðferð kvartana sem berast frá viðskiptavinum. Þeir viðskiptavinir sem vilja kvarta undan þjónustu eða háttsemi bankans skulu beina slíkri kvörtun skriflega til regluvarðar á skrifstofu bankans eða senda tölvupósti á netfangið regluvordur@straumur.com. Bankinn skal svara kvörtunum innan 28 daga frá því að bankanum barst skrifleg kvörtun.
Bankinn er aðili að úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki. Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki starfar samkvæmt samningi milli efnahags- og viðskiptaráðherra, Neytendasamtakanna og Samtaka fjármálafyrirtækja, svo og samkvæmt samþykktum er hún setur sér.
Viðskiptavini er heimilt að bera ágreining við bankann undir úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki, að því skilyrði uppfylltu að liðnir séu 28 dagar frá því að bankanum barst skrifleg kvörtun frá viðskiptavini. Um meðferð málsins hjá úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki gilda samþykktir nefndarinnar. Frekari upplýsingar um nefndina eru aðgengilegar á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins: http://www.fme.is/
Bankanum og viðskiptavini, saman eða hvorum aðila um sig, er ávallt heimilt að leggja ágreining fyrir dómstóla og takmarkar niðurstaða úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki ekki þann rétt.
