Besta framkvæmd
Verklagsreglur um framkvæmd viðskiptafyrirmæla
1. Inngangur
1.1 Markmið
Á Straumi fjárfestingabanka hf. hvílir sú skylda, í samræmi við 18. og 19. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, að leitast við að tryggja viðskiptavinum bestu mögulegu niðurstöðu við framkvæmd viðskiptafyrirmæla þeirra.
Markmið reglna þessara er setja fram viðmið í tengslum við framkvæmd viðskiptafyrirmæla viðskiptavina. Bankinn gerir þá kröfu til starfsfólks að ætíð verði leitað allra eðlilegra leiða til að ná fram bestu mögulegu niðurstöðu fyrir viðskiptavini við framkvæmd viðskiptafyrirmæla.
Í verklagsreglunum felast ekki loforð eða skuldbindingar umfram það sem krafist er samkvæmt lögum og reglugerðum á hverjum tíma.
Finna má skilgreiningar á helstu hugtökum sem notuð eru í reglum þessum í lögum um verðbréfaviðskipti nr. 107/2008.
1.2 Gildissvið
Reglur þessar gilda um framkvæmd viðskiptafyrirmæla viðskiptavina Straums sem flokkast sem fagfjárfestar og almennir fjárfestar. Reglur þessar gilda ekki um viðurkennda gagnaðila og njóta þeir því ekki þeirrar verndar sem í reglunum felst.
Reglurnar ná til allra tegunda fjármálagerninga eins og það hugtak er skilgreint í 2. tl. 2. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 107/2008.
Með framkvæmd viðskiptafyrirmæla í reglum þessum er átt við þær aðstæður þegar viðskiptavinur treystir á Straum til þess að gæta hagsmuna sinna með tilliti til verðs, hraða og annarra þátta við framkvæmd viðskipta fyrir hönd viðskiptavinar. Þetta á við þegar Straumur veitir eftirfarandi þjónustu:
· Framkvæmir fyrirmæli fyrir hönd viðskiptavinar;
· Móttekur og miðlar fyrirmælum frá viðskiptavini.
Verklagsreglur þessar gilda ekki þegar Straumur framkvæmir hvorki né miðlar viðskiptafyrirmælum fyrir hönd viðskiptavina, til dæmis þegar bankinn birtir eða gefur upp tilboð um kaup eða sölu fjármálagerninga og viðskiptavinurinn á viðskipti við bankann á grundvelli þess tilboðs.
2. Um bestu framkvæmd viðskiptafyrirmæla
2.1 Almennt
Þegar Straumur framkvæmir viðskiptafyrirmæli þá skal bankinn leita allra leiða til að tryggja bestu mögulegu niðurstöðu fyrir viðskiptavini sína með tilliti til verðs, kostnaðar, hraða, líkinda til þess að af viðskiptunum verði, umfangs, eðlis og annarra þátta sem máli skipta.
2.2 Þættir sem litið er til og vægi þeirra
Ætla má að meirihluti viðskiptafyrirmæla frá viðskiptavinum verði framkvæmdar með tilliti til besta mögulegs verðs að frádregnu kostnaði í tengslum við viðskiptin. Af þessum sökum er verð almennt sá þáttur sem hefur hvað mest vægi við framkvæmd viðskiptafyrirmæla.
Í sumum tilvikum er þó mögulegt að aðrir þættir en verð séu mikilvægari til að tryggja bestu niðurstöðu:
· Annar viðskiptakostnaður og áhætta tengd viðskiptunum
· Hraði viðskiptanna
· Líkur á því að viðskiptin nái fram að ganga
· Stærð og eðli viðskiptanna
· Aðrir þættir sem til greina koma og varða framkvæmd fyrirmælanna
Hlutfallslegt mikilvægi hvers þáttar er breytilegt og ræðst af eftirfarandi viðmiðum:
· Tegund og flokkun viðskiptavinar
· Eðli viðskiptafyrirmæla
· Eðli þess fjármálagernings sem viðskiptafyrirmælin ná til
· Eðli viðskiptastaða sem bankinn getur leitað til við framkvæmd fyrirmælanna
· Mismunandi markaðsþáttum og markaðsaðstæðum
3. Framkvæmd fyrirmæla
3.1 Almennt
Fyrirmæli viðskiptavinar skulu að öllu jöfnu framkvæmd eins skjótt og mögulegt er og í þeirri röð sem þau berast, nema aðstæður séu því til fyrirstöðu eða ef talið er að hagstæðara sé fyrir viðskiptavin að fyrirmælin séu framkvæmd á annan hátt.
3.2 Viðskiptastaðir
Ef bankinn hefur möguleika á því að nota mismunandi viðskiptastaði við framkvæmd viðskiptafyrirmæla skal leitast við að bera saman verð sem í boði eru á hverjum stað. Í því ferli skal bankinn reyna að fá hagstæðasta verðið sem í boði er (að teknu tilliti til viðskiptakostnaðar) á þeim viðskiptastöðum sem bankinn hefur heimild til þess að leita til. Þó skal ætíð hafa í huga að annar þáttur en verð gæti leitt til betri niðurstöðu fyrir viðskiptavin í ákveðnum tilfellum.
Straumur er aðili að Nasdaq OMX á Íslandi og hefur milligöngu um viðskipti með fjármálagerninga á þeim markaði. Þegar kemur að viðskiptum með fjármálagerninga sem skráðir eru á aðra skipulega verðbréfamarkaði mun Straumur hafa milligöngu um þau viðskipti í samstarfi við fjármálafyrirtæki sem er aðili að þeim markaði.
Lista yfir viðskiptastaði sem bankinn notar er að finna á vefslóðinni www.straumur.com.
3.3 Viðskiptavinur mælir fyrir um ákveðna framkvæmd
Ef viðskiptavinur gefur bankanum viðskiptafyrirmæli þar sem sérstaklega er tilgreint hvar og/eða hvernig þau á að framkvæma þá mun bankinn framfylgja því eftir bestu getu. Viðskiptafyrirmæli af þessu tagi leysa bankann þó ekki undan þeirri skyldu að leitast við að ná bestu mögulegu niðurstöðu fyrir viðskiptavin fyrir þá hluta pöntunar sem ekki er sérstaklega mælt fyrir um.
3.4 Framkvæmd fyrirmæla utan skipulegra markaða
Bankinn kann að meta aðstæður með þeim hætti að betri niðurstaða fáist við framkvæmd viðskiptafyrirmæla utan markaða. Slík tilvik koma fyrst og fremst til skoðunar þegar um er að ræða umfangsmeiri viðskipti en almennt þekkist í viðskiptum með viðkomandi verðbréf. Starfsmenn bankans skulu ætíð meta það heildstætt hvort hagkvæmara sé fyrir viðskiptavin að framkvæma viðskiptafyrirmæli utan markaða en á markaði.
Samþykki viðskiptavinar sem fylgir reglum þessum gerir ráð fyrir að viðskiptavinur samþykki sérstaklega að Straumur framkvæmi viðskiptafyrirmæli utan markaða ef við á.
4. Samsöfnun pantana
Straumi er heimilt en ekki skylt að safna saman pöntunum mismunandi viðskiptavina og/eða pöntunum fyrir eigin reikning og heimila því fjármálafyrirtæki sem bankinn kann að miðla fyrirmælum til að safna saman pöntunum frá Straumi við pantanir annarra viðskiptavina þess fjármálafyrirtækis og/eða pantana fjármálafyrirtækisins sjálfs. Bankinn mun úthluta viðskiptavinum sínum úr slíkum samsöfnunum á eðlilegan og sanngjarnan máta.
Ef samsöfnuð pöntun er ekki öll framkvæmd á sama verði þá má Straumur reikna út það meðalverð sem fékkst í viðskiptunum við úthlutun til viðskiptavina. Að beiðni viðskiptavinar mun Straumur láta í té viðeigandi upplýsingar um útreikning á meðalverði. Athygli viðskiptavinar er vakin á að samsöfnun pantana getur leitt til óhagstæðrar niðurstöðu fyrir viðskiptavini í einstökum tilvikum.
5. Eftirlit með framkvæmd viðskiptafyrirmæla og endurskoðun
Bankinn skal tryggja að reglulegt eftirlit sé fyrir hendi með framkvæmd reglna þessara og að þess sé gætt að þeim sé fylgt í framkvæmd.
Reglur þessar skulu endurskoðaðar með reglulegum hætti eftir því sem þörf krefur þannig að þær fullnægi á hverjum tíma þeim lagaskyldum sem hvíla á bankanum.
6. Upplýsingaskylda
Ef viðskiptavinur óskar þess skal bankinn sýna fram á að fyrirmæli hans hafi verið framkvæmd í samræmi við verklagsreglur þessar. Bankinn mun í því skyni skrá og/eða geyma á tölvutæku formi nauðsynlegar upplýsingar um viðskiptavini og viðskipti þeirra hjá bankanum.
Verði reglum þessum breytt efnislega mun bankinn upplýsa viðskiptavini sína um það með birtingu á uppfærðum reglum á heimasíðu bankans.
