Lagalegir fyrirvarar
Allar upplýsingar sem birtar eru á vefsíðunni www.straumur.com eru samkvæmt bestu vitund Straums IB hf. (Straumur eða bankinn) á hverjum tíma. Bankinn ábyrgist á engan hátt réttmæti upplýsinganna, hvort sem þær koma frá bankanum sjálfum eða þriðja aðila. Straumi er ekki skylt að uppfæra það sem fram kemur á vefnum og kunna upplýsingar og skoðanir sem þar koma fram að breytast án fyrirvara.
Upplýsingar sem birtar eru á vefsíðu Straums skulu ekki á nokkurn hátt skoðast sem ráðleggingar til viðskiptavina um kaup eða sölu tiltekinna fjármálagerninga eða aðrar fjárfestingaákvarðanir. Bera notendur síðunnar einir ábyrgð á þeim fjárfestingaákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga sem birtar eru á vefsíðunni.
Straumur ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum sem birtast á vefsíðu bankans né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar hennar. Straumur ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, í skemmri eða lengri tíma.
Viðskipti með fjármálagerninga eru mjög áhættusöm í eðli sínu. Verðbreytingar í fortíð gefa ekki endilega vísbendingu um verðbreytingar í framtíð. Notendur á vef Straums eru hvattir til að afla sér almennra upplýsinga um eðli verðbréfaviðskipta, fjárfestingamálefni, skattamál o.fl. sem tengist verðbréfaviðskiptum.
Straumur á höfundarrétt á öllum þeim upplýsingum sem fram koma á vef bankans, nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða má af eðli máls. Skriflegt samþykki Straums þarf til að endurbirta upplýsingar sem fram koma á vef bankans, dreifa þeim eða afrita þær. Ekki skiptir máli hvers eðlis þær upplýsingar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta þær, afrita þær eða dreifa þeim. Viðskiptavinum Straums er þó heimilt að vista slíkar upplýsingar til einkanota.
Lagalegur fyrirvari vegna tölvupósts
Efni tölvupósta og viðhengja sem sent er frá Straumi kann að vera trúnaðarmál. Ef sá sem tekur við tölvupósti er ekki réttur viðtakandi, er hann vinsamlegast beðinn um að tilkynna sendanda og eyða tölvupóstinum og viðhengjum án þess að afrita, dreifa eða notfæra sér þau á nokkurn hátt. Sé efni tölvupósts og viðhengja ótengt starfsemi Straums eða tengdra félaga er sendandi einn ábyrgur. Óheimil notkun getur varðað bótaábyrgð og refsingu.
Upptaka símtala, geymsla og vistun gagna
Í þeim tilgangi að tryggja öryggi viðskiptavina og Straums er viðskiptavini kunnugt um að viðskiptasímtöl við bankann kunna að vera hljóðrituð án sérstakrar tilkynningar í hvert sinn og eru slíkar upptökur gerðar í samræmi við heimild í lögum um fjarskipti.
Viðskiptavini er kunnugt um að upptökur kunni að vera lagðar fram í dómsmáli og/eða notaðar sem sönnunargagn í öðrum tilvikum ef upp kemur ágreiningur um hvað aðilum fór á milli, svo sem um forsendur og/eða framkvæmd viðskipta. Að öðru leyti skal bankinn fara með upptökur líkt og með aðrar upplýsingar er lúta þagnarskyldu, sbr. 58. til 60. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Öll gögn sem innihalda upplýsingar um viðskipti viðskiptavina og framkvæmd þeirra eru vistuð hjá bankanum í það minnsta fimm ár.
