Verðbréfamiðlun
Straumur fjárfestingabanki kaupir og selur skráð og óskráð verðbréf og afleiður fyrir hönd viðskiptavina sinna. Straumur er aðili að Nasdaq OMX Nordic kauphöllinni og aðalmiðlari með helstu flokka ríkisbréfa. Enn fremur bjóða sérfræðingar markaðsviðskipta upp á þjónustu á alþjóðlegum verðbréfamörkuðum.
Starfsmenn markaðsviðskipta hafa mikla þekkingu og reynslu á verðbréfaviðskiptum og þeir leggja metnað sinn í að veita faglega ráðgjöf og vandaða þjónustu.
