Upphaf viðskipta

Áður en viðskiptavinir geta hafið viðskipti hjá Straumi er nauðsynlegt að þeir kynni sér reglur og skilmála bankans og undirriti viðeigandi skjöl. Til að auðvelda viðskiptavinum hefur bankinn birt leiðbeiningar sem finna má hér að neðan. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er viðskiptavinum bent á að hafa samband við starfsmenn markaðsviðskipta í síma 585 6600 eða með því að senda tölvupóst á markadsvidskipti (hjá) straumur (.) com

Gátlisti við upphaf viðskipta

Skjöl til undirritunar má finna hér: Eyðublöð og skilmálar

Einstaklingar:

  1. Undirrita almenna markaðsskilmála Straums
    1. Upphafsstafir á hverja síðu í kassa
    2. Tveir vottar undirrita samning
  2. Undirrita tryggingaskilmála Straums
  3. Undirrita samþykki fyrir reglum um bestu framkvæmd o.fl.
  4. Fylla út eyðublað vegna laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
  5. Fylla út eyðublað um mat á hæfi
  6. Undirrita staðfestingu á flokkun (á eingöngu við um fagfjárfesta og viðurkennda gagnaðila)
  7. Senda afrit af gildum persónuskilríkjum (vegabréf eða ökuskírteini)
  8. Starfsmenn Straums útvega afrit úr vanskilaskrá

Lögaðilar:

  1. Undirrita almenna markaðsskilmála Straums
    1. Upphafsstafir á hverja síðu í kassa
    2. Meirihluti stjórnar þarf að skrifa undir skilmálana eða samkvæmt umboði frá stjórn (stjórnarsamþykkt + umboð)
    3. Fylla út umboð til starfsmanna, viðauki IV
    4. Tveir vottar (mega ekki vera í stjórn eða hafa prókúru)
  2. Undirrita tryggingaskilmála Straums
  3. Undirrita samþykki fyrir reglum um bestu framkvæmd o.fl.
  4. Fylla út eyðublað vegna laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
  5. Fylla út eyðublað um mat á hæfi
  6. Undirrita staðfestingu á flokkun (á eingöngu við um fagfjárfesta og viðurkennda gagnaðila)
  7. Senda afrit af gildum persónuskilríkjum allra prókúruhafa (vegabréf eða ökuskirteini)
  8. Skila inn vottorði frá hlutafélagaskrá/firmaskrá
Senda



Leita á vefnum


Image courtesy of Paul Corica www.psimage.co.uk
Þetta vefsvæði byggir á Eplica