Gjaldeyrisviðskipti
Straumur býður viðskiptavinum sínum upp á viðskipti með gjaldeyri. Helstu viðskiptavinir í slíkum gjaldeyrisviðskiptum Straums eru fyrirtæki í inn- og útflutningi og aðrir aðilar sem þurfa á þjónustu að halda vegna gjaldeyrisviðskipta.
Fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands
Straumur er milligönguaðili í fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands. Fjárfestingarleiðin felur í sér að fjárfestar sem hyggjast fjárfesta á Íslandi fyrir erlendan gjaldeyri geta keypt íslenskar krónur fyrir hluta gjaldeyrisins í gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands að vissum skilyrðum uppfylltum. Sem milligönguaðili veitir Straumur viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu í tengslum við fyrirtækjaráðgjöf, gjaldeyrisviðskipti og umsókn um aðgengi að uppboðum Seðlabanka Íslands.
