Fyrirtækjaráðgjöf
Starfsmenn fyrirtækjaráðgjafar Straums búa yfir áralangri reynslu og yfirgripsmikilli þekkingu, einkum á íslenska markaðinum og bjóða upp á öfluga ráðgjöf með framúrskarandi aðgangi að íslenskum og erlendum fjárfestum.
Þrátt fyrir að verkefni fyrirtækjaráðgjafar geti haft sameiginlega eiginleika eru þau að mörgu leyti ólík og geta krafist mismunandi nálgunar, m.a. hvað varðar samskipti við hagsmunaaðila, fjármögnun og fyrirkomulag. Þess vegna leggur fyrirtækjaráðgjöf Straums ríka áherslu á að þekkja þarfir viðskiptavina sinna og viðhalda góðu langtímaviðskiptasambandi við þá. Viðskiptavinir ráðgjafarinnar eru einkum fyrirtæki og fjárfestar.
Vinsamlegast hafið samband við fyrirtækjaráðgjöf Straums fjárfestingabanka hf. í síma 585 6600 eða fyrirtaekjaradgjof (hjá) straumur (.) com vegna frekari upplýsinga eða stofnunar viðskipta.
