Ráðgjöf
Fyrirtækjaráðgjöf Straums veitir viðskiptavinum óháða ráðgjöf við mat á fjárfestingarkostum og fjármálagjörningum. Ráðgjöfin getur bæði snúið að þeim kostum sem viðskiptavinur stendur frammi fyrir, svo sem þátttöku í útboði eða endurskipulagningu, eða þá að viðskiptavinur óskar eftir ferskri sýn á þau verkefni sem hann stendur frammi fyrir.
Kaup, sala og sameining fyrirtækja
Straumur veitir alhliða ráðgjöf um kaup, sölu og sameiningu fyrirtækja. Fyrirtækjaráðgjöf Straums veitir þeim ráðgjöf sem óska eftir fyrirtækjakaupum og þeim sem óska eftir kaupendum að hlut sínum í fyrirtækjum. Fyrirtækjaráðgjöf Straums hefur þannig milligöngu um að leiða saman kaupendur og seljendur.
Endurskipulagning
Fyrirtækjaráðgjöf Straums veitir félögum, stofnunum og sveitarfélögum óháða ráðgjöf við endurskipulagningu rekstrar og efnahags. Í henni getur falist greining á möguleikum við endurfjármögnun og samningar við lánardrottna.
