2.júni 2009
Upplýsingabréf nr. 2 til starfsmanna á uppsagnarfresti vegna laga nr. 61/2009 sem hafa verið samþykkt á Alþingi.
(English below)
Um greiðslu launa í uppsagnarfresti
Föstudaginn
29. maí sl. voru samþykkt á Alþingi lög sem heimila skilanefnd
fjármálafyrirtækis að greiða skuldir vegna launa, þ.m.t. vegna launa í
uppsagnarfresti ef víst er að nægilegt fé sé til að greiða að fullu eða
í jöfnu hlutfalli kröfur sem gætu notið sömu eða hærri stöðu í
skuldaröð. Skilanefnd Straums hefur samþykkt að nýta heimild þá er
lögin veita henni til greiðslu launa til starfsmanna á uppsagnarfresti.
Laun sem greiða átti þann 29. maí sl. verða því greidd á næstu dögum.
Í
framhaldi er reiknað með að greiðsla launa í uppsagnarfresti um næstu
mánaðarmót gangi eðlilega fyrir sig að óbreyttum forsendum.
Um kröfulýsingar
Þeir
sem hafa fengið allar kröfur sínar greiddar í lok júní og eiga því enga
kröfu á Straum þegar að kröfulýsingafrestur rennur út þann 18. júlí nk.
munu ekki þurfa að lýsa kröfu í búið. Einungis þeir sem enn eiga inni
útistandandi laun eða aðrar kröfur þegar 18.júlí 2009 rennur upp munu
þurfa að lýsa kröfu í fyrirtækið. Starfsmannasvið mun leggja til
uppsetningu á slíkum kröfum í samvinnu við lögfræðing. Gögn um kröfur
verða sendar starfsmönnum til yfirferðar í byrjun júlí, en starfsmenn
verða sjálfir að sjá um að senda þær til slitastjórnar bankans og
ábyrgjast sjálfir efni slíkra kröfulýsinga.
Starfsmannasvið hefur
móttekið beiðni fjölmargra starfsmanna um að útbúa kröfur í þeirra
nafni. Starfsmannasvið mun verða starfsmönnum innan handar með
upplýsingagjöf eins og hægt er, sbr. framangreint.
Ef spurningar vakna, vinsamlega hafið samband við starfsmannasvið – Einnig má nálgast upplýsingar á heimasíðu Straums;hér.
English version: Information on Act 61/2009 – Amendment to act no 44/2009 Salary payments during notice period
The Icelandic government passed late on Friday 29th May an amendment
to Act No 44/2009 legislation that authorises a financial undertaking
to pay preferential claims, including salaries during a notice periods.
Straumur’s
Resolution Committee has now approved the payment of salaries during
employees’ notice period. Therefore we have arranged an exceptional
payroll run to ensure that monies due for May are paid into your
account within in the next few days.
Given the current presumptions, we expect this month’s payroll (June
payroll) to run smoothly following the Resolution Committee’s approval
later in June.
Claims
Those of you who have no outstanding claim by 18 July 2009, when the
limit for submitting a claim is over, do not need to submit a claim at
all and HR will ignore your earlier request regarding help to submit a
claim.
Unfortunately those of you who still have an outstanding claim on 18
July 2009 will still need to submit a claim. Human Resources will
prepare claim forms for those employees detailing the value of the
claim including salaries, holiday allowance and other statutory
payments before 18 July 2009. Copies of these will be sent to your
home address with any instructions or further information. However
please note that it is your responsibility to ensure the claim is
submitted not Straumur’s.
Should you have any questions, please contact HR humanresources@straumur.com or view our website here.
Upplýsingabréf til starfsmanna Straums og starfsmanna á
uppsagnafresti vegna laga nr. 44 sem samþykkt voru á alþingi þann 22.
apríl 2009
Tilgangur þessa bréfs er m.a. að upplýsa alla starfsmenn Straums
sem eru á uppsagnarfresti um ný lög sem sett voru á Alþingi í apríl sl.
en lögin hafa áhrif á heimildir til greiðslu launa í uppsagnarfresti .
Um greiðslu launa í uppsagnarfresti
Með lögum nr. 44/2009 sem tóku gildi 22. apríl sl. voru gerðar
breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki sem áhrif hafa á greiðslur í
uppsagnarfresti til starfsmanna fjármálafyrirtækja sem heimild hafa
fengið til greiðslustöðvunar. Af breytingunni leiðir að skylt er að
gefa út innköllun til kröfuhafa sem þurfa að lýsa kröfum sem þeir telja
sig eiga á hendur umræddum fyrirtækjum. Í tilviki Straums var ákveðið
að hafa þann frest eins skamman og lög leyfa, eða tvo mánuði. Innköllun
hefur þegar verið birt og frestur til að lýsa kröfum rennur út 18. júlí
nk. Samkvæmt ákvæðum áðurnefndra laga er fyrst heimilt að greiða kröfur
að loknum kröfuhafafundi sem haldinn verður þann 6. ágúst nk. Þetta
þýðir að lögum samkvæmt er ekki unnt að greiða starfsmönnum sem hættir
eru störfum en eiga inni laun á uppsagnarfresti launagreiðslur að svo
stöddu.
Framangreindar breytingar taka sem fyrr segir til allra
fjármálafyrirtækja í greiðslustöðvun og ekki á valdi stjórnenda eða
skilanefndar að hafa annan hátt á greiðslum launa í uppsagnarfresti.
Það er hins vegar rétt að árétta að engar breytingar hafa verið gerðar
á stöðu launa í réttindaröð. Launakröfur teljast til forgangskrafna og
ættu því allar að greiðast í framhaldi af áðurnefndum kröfuhafafundi
enda er það mat stjórnenda Straums að eignir félagsins nægi til
greiðslu allra forgangskrafna.
Rétt er að fram komi að athygli stjórnvalda hefur verið vakin á
málinu. Unnið er að frumvarpi til lagabreytinga sem myndi heimila
tilteknar greiðslur, þ.m.t. eðlilegar launagreiðslur í uppsagnarfresti.
Vonir standa til að úr þessu rætist, en mikil óvissa ríkir enn þar sem
innihald frumvarpsins og hvort/hvenær það verður samþykkt er enn
óráðið. Starfsmannasvið mun fylgjast náið með framvindu mála og halda
starfsmönnum upplýstum eins og kostur er.
Um kröfulýsingar
Eins og áður segir þurfa þeir sem telja sig eiga kröfur á hendur
Straumi að lýsa kröfum sínum fyrir 18. júlí nk. Þetta á m.a. við um
starfsmenn sem rétt eiga til launa í uppsagnarfresti. Starfsmannsvið
Straums mun aðstoða alla starfsmenn sem eftir því óskað við að útbúa
bréf með upplýsingum um útistandandi kröfur. Útbúin verða bréf fyrir
starfsmenn þar sem fram koma upplýsingar um útistandandi laun, orlof og
lífeyrissjóðsgreiðslur. Starfsmannasvið mun síðan með aðstoð lögmanns
SSF lýsa kröfum eftir því sem við á. Óskir þú aðstoðar starfsmannasviðs
Straums við að lýsa kröfum þínum samkvæmt framangreindu ert þú
vinsamlegast beðin(n) að senda beiðni þar að lútandi á humanresources@straumur.com fyrir 5. júní nk.
English version
We need to inform you that new legislation introduced in Iceland
regarding creditor payments may affect the remaining notice pay due to
you from the Bank. As a result of this legislation change you will no
longer be paid your remaining notice but have to claim for any monies
still owing to you. Assuming payment is approved, any monies still
owed will be paid out after a creditors’ meeting due to be held on 6
August 2009.
Salary payments during notice
To explain the background, Act No 44/2009, in force since 22 April,
amended the legislation on financial undertakings. These changes affect
redundancy payments to employees of financial undertakings, which have
been granted authorised debt moratorium. It follows from these
amendments that a notice will be issued to creditors, requesting them
to submit claims they may have against the undertakings in question. As
regards Straumur, it has been decided that the time limit for
submitting claims of two months is the shortest allowed by law before
18 July. In accordance with provisions of the new legislation, claims
can only be settled after a creditor meeting has been held upon the
lapse of this two month period. This means that employees no longer
actively engaged but entitled to salaries during their notice period,
will not receive payments until that time. All salaries are still
regarded as preferential claims therefore should be paid once the
creditors’ meeting has been held. This meeting has been set for 6
August 2009 and outstanding salary payments will be made as soon as
possible thereafter, provided that the Bank has sufficient assets to
pay all preferential claims. The management of Straumur firmly believes
that this condition will be met.
The changes outlined above regarding redundancy payments affect all
financial undertakings during moratorium and it is not within the power
of management or the winding-up board to be excepted from these
provisions. It should be iterated that no changes have been made on the
position of salaries in the ranking of claims for liquidation purposes,
salaries remain preferential claim.
The Icelandic government has been made aware of the issue and is
working on a proposed amendment, allowing certain payments, like normal
salaries during employees’ notice period. We are hoping the issue will
be resolved but there is still much uncertainty since the content in
the proposed amendment is not known to us and we don´t know if/when the
amendment will be passed.
Claims
Human Resources will help prepare a claim form for all employees who
need to claim their redundancy payments which will state the value of
the claim including salaries, holiday allowance and other statutory
payments before 18 July. Please let us know if you want help with this
process. After preparing the letter the claim will be sent in with the
help of a lawyer representing the Union of Financial Employees in
Iceland and all other staff of the Bank. This applies to all Straumur
employees no matter where they are located.
As stated we are hoping the issue will get resolved and should
anything change as a result of our lobbying, we will keep you
informed. However we feel that in the meantime you should send in a
claim to ensure that, if nothing changes, you do not miss out receiving
your remaining salary from the Bank. Please email humanresources@straumur.com by 5 June if you want to submit a claim