Velkomin til Straums

Straumur er sjálfstæður og óháður fjárfestingabanki. Straumur veitir bæði innlendum og erlendum viðskiptavinum sínum almenna fjárfestingabankaþjónustu, þar með talið markaðsviðskipti og fyrirtækjaráðgjöf. Bankinn hefur mikla reynslu og yfirgripsmikla þekkingu á íslenska markaðnum og býður upp á öflugar dreifileiðir með aðgang að fjárfestum á Íslandi, Evrópu og Bandaríkjunum.



Um Straum

Straumur er sjálfstæður og óháður fjárfestingabanki . Eignarhald bankans er traust, alþjóðlegt og án aðkomu ríkisins. Starfsmenn bankans hafa mikla reynslu af almennri fjárfestingabankastarfsemi og leggja metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum vandaða þjónustu.


 

Markaðsviðskipti

Markaðsviðskipti Straums bjóða fjárfestum upp á þjónustu á sviði verðbréfamiðlunar, gjaldeyrismiðlunar og afleiðuviðskipta. Straumur er aðili að Nasdaq OMX Nordic kauphöllinni og bankinn er aðalmiðlari með helstu flokka ríkisbréfa.


 


Flýtileiðir


Skilaboð frá forstjóra

Markmið Straums er að vera leiðandi fjárfestingabanki á Íslandi. Bankinn er sjálfstæður og óháður en það tel ég vera helstu styrkleika bankans ásamt mannauðnum. Starfsmenn Straums eru um 25 talsins og þeir hafa allir víðtæka reynslu.



Leita á vefnum


Image courtesy of Paul Corica www.psimage.co.uk
Þetta vefsvæði byggir á Eplica